Lýsing

Óvissuferð í Fjóskadal, Þórðarstaðir inn í Lundsskóg og til baka.

Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. 

Sameinast í bíla ef vill. 


Það tekur um 30 mín að aka að brúnni við Illugastaði miðað við að fara göngin. Við brúna bíður Valur Magnússon tilbúinn til að leiða hópinn inn í skóginn.  Gengið verður eftir skógarstíg frá Þórðarstöðum og áleiðis inn í Lundsskóg. Gert er ráð fyrir að ganga ca í eina og hálfa klukkustund, taka nestispásu og fara sömu leið til baka. Heildargöngutími er ca þrjár klukkustundir en færð hefur að sjálfsogðu mikil áhrif. 

Þessi ganga ætti að skila allt að 10 km heildarvegalengd. Mikill snjór er núna í skóginum og gott göngufæri. Nokkrar brattar brekkur eru á þessari leið og þarf bæði að ganga upp þær og renna niður. Þetta er þó ekkert sem ekki er hægt að ráða við og passað verður upp á hraðann fyrir óvana. Það spáír snjókomu næstu tvo daga svo það ætti að bæta vel í en á laugardaginn á að vera bjart og fínt veður. Búast má við nokkru frosti og klæða þarf sig skv. því.

Þessi ganga er tveggja "skóga" ganga.


Þátttaka ókeypis


Skráning í ferðina
Skráning í ferðina

Búnaður

  • Lengri ferðir: Göngu- og skíðaferðir - 2 skór

    Miðlungserfiðar ferðir: Miðlungslangar dagleiðir, yfirleitt 5 - 7 klst., oftast utan slóða og /eða í hæðóttu landi. Bakpoki þarf ekki að vera þungur. Engar eða auðveldar ár. Þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun.

    Í nokkurra daga ferð reynir oft meira á úthald hjá fólki en í dagsferðum.


    Viðbót við grunn-búnaðarlista fyrir 2 skó. Sjá grunnlista hér.

    ATH. Fararstjóri tekur fram ef annan búnað þarf


    Í lengri ferðir (1 - 4 dagar) þarf auk grunnbúnaðar:

    Gönguskór sem henta aðstæðum og veita góðan stuðning

    Bakpoki: Stærri bakpoki ef gengið er með allt á bakinu annars dagspoki. Bakpokinn þarf að vera með bakpokahlíf

    Inniskór ef gist er í fjallaskálum

    Svefnpoki (og lítill koddi)

    Fatnaður sem bæta þarf við: Nærföt til skiptanna, sokkar, millilag og auka föt ef fólk blotnar

    Lítið viðgerðasett (nál, tvinni, lítil skæri)

    Nauðsynlegar snyrtivörur og eyrnatappa

    Vatn/drykkir og nesti til dagsins (einnig göngunasl)

    Matur og hæfilegt magn af orkuríku nesti og drykkjum (eftir lengd, aðstæðum og fyrirkomulagi ferðar)

    Kort, áttaviti, GPS tæki


    Í vetrarferðir (göngu- eða skíðaferðum) þarf auk grunnbúnaðar:

    Utanbrautarskíði með stálköntum (skinn á skíðin)

    Hlífðargleraugu

    Brodda og ísexi (ef leið liggur um brattlendi)

    Hlýrri fatnað en að jafnaði í sumarferðum: Ullarnærföt, ullarhúfa, ullarvettlingar og vindhelt ysta lag (buxur, jakki og lúffur) eru nauðsynlegur búnaður

    Orkumikið nesti og nóg að drekka (heitt og kalt í ílátum sem ekki frýs